Fara í efni

Deiliskipulagsbreyting - athafnasvæði við Innri-Gleðivík, bætt vegtenging

30.03.2026 Skipulag í auglýsingu Auglýsingar

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings samþykkti þann 23. febrúar 2026 að kynna vinnslutillögu vegna breytinga á deiliskipulagi athafnasvæðis við Innri-Gleðivík á Djúpavogi samkvæmt 4. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsáætlunin er unnin af EFLU verkfræðistofu fyrir hönd sveitarfélagsins. Meginmarkmið hennar er að gera ráð fyrir tengingu við hringveginn sem uppfyllir áherslur og viðmið Vegagerðarinnar um þjóðvegi.

Skipulagstillagan er aðgengileg í gegnum Skipulagsgátt 

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til og með 17. apríl 2026. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is.

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

Deiliskipulagsbreyting - athafnasvæði við Innri-Gleðivík, bætt vegtenging
Getum við bætt efni þessarar síðu?