Ungmennafélag Borgarfjarðar (UMFB) rekur líkamsræktaraðstöðuna á Borgarfirði sem staðsett er á efri hæð félagsheimilisins Fjarðarborgar.
Á dögunum festi UMFB kaup á nokkrum nýjum tækjum í safnið, svo sem lyftingabúri og -bekk, stigavél og skíðavél og er því aðstaðan orðin hin glæsilegasta.
Aðstaðan er vel nýtt af heimafólki og þau sem gera það ekki nú þegar en hafa áhuga á að tryggja sér kort í ræktina geta haft samband við formann UMFB, Óttar Má á netfangið tankurinn@gmail.com eða í síma 848 2249.