Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings hefur falið skipulagsfulltrúa að framkvæma grenndarkynningu í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna byggingaáforma vegna viðbyggingar við grunnskólann á Seyðisfirði við Skólaveg 1 (L155232).
Gert er ráð fyrir að núverandi skólabygging verði framlengd til vesturs og að tengibygging komi á milli skólans og íþróttahússins. Austanmegin verður eldra einnar hæðar anddyri fjarlægt og í stað þess reist nýtt anddyri og nýbygging með skólastofum og starfsmannarýmum á jarðhæð, og loftræstikerfi á 2. hæð.
Aðalinngangur verður áfram á vesturhlið hússins. Starfsmannainngangur, ásamt vörumóttöku, verður austanmegin og verður akstursleið vörubíla meðfram íþróttahúsinu að vörumóttöku.
Í nýju og endurbættu húsnæði verður aðstaða fyrir nemendur í 1.–10. bekk og tónlistarskóla bæjarins.
Meðfylgjandi eru aðaluppdrættir, dagsettir 24. febrúar 2026.
Athugasemdum og ábendingum skal skila í síðasta lagi þann 27. apríl í gegnum Skipulagsgátt.
Jafnframt er unnt að óska eftir frekari upplýsingum á netfanginu skipulagsfulltrui@mulathing.is.