Erica Sieling opnar myndlistarsýninguna „Ég á heima hér“ í Gallerí Glettu í Hafnarhúsinu á Borgarfirði eystra. Þar hefur hún búið undanfarin sjö ár.
Sýninguna byggir hún á reynslu sinni af því að búa og vinna á Borgarfirði undanfarin ár. Erica kom fyrst til landsins sem ferðamaður í nokkrar vikur en heillaðist af svæðinu og kom aftur ári síðar til að vinna.
Erica, sem fædd er í Hollandi, segir að Borgarfjörður hafi mótað bæði líf hennar og listaferil. Hún finni þar sterklega fyrir tilfinningunni að tilheyra, eins og titill sýningarinnar og verkin á henni beri vitni um. Þess vegna horfi hún á þögul smáatriði í umhverfinu og samfélaginu sem hún veitir gestum sýningarinnar innsýn í.
Sýningin verður opnuð laugardaginn 18. apríl kl. 16:00 og stendur yfir til 11. júní.