Fara í efni

Hollvættur á heiði frumsýnt  í Sláturhúsinu þann 4.nóvember

4. nóvember 2023

Nýtt íslenskt barnaleikrit; Hollvættur á heiði eftir Þór Túliníus verður frumsýnt  í Sláturhúsinu þann 4.nóvember.

Það er valinkunnur hópur listafólks sem stendur að sýningunni; Ágústa Skúladóttir leikstýrir, Þórunn María Jónsdóttir er leikmynda og búningahönnuður, Aldís Davíðsdóttir gerir brúður, Ólafur Ágúst Stefánsson hannar lýsingu, tónlist semur Eyvindur Karlsson og tónlistarstjórar eru Øystein Gjerde og Hlín Pétursdóttir Behrens

Í aðalhlutverkum eru þau Jökull Smári Jakobsson, Vigdís Halla Birgisdóttir og Kristrún Kolbrúnardóttir ásamt Tess Rivarola sem stýrir brúðunni Þokkabót. Æfingaferlið hófst fyrir sunnan í byrjun september og fékkst aðsetur hjá Leikfélagi Kópavogs til æfinga. Um miðjan september hófust svo æfingar hér fyrir austan og í leikhópinn bættist við heimafólk, mörg þeirra hafa þegar stigið sín fyrstu skref á leiksviði m.a. með leikfélagi Fljótsdalshéraðs og leikfélagi ME en flestöll eru að stíga sín fyrstu skref í atvinnuleikhúsi, þetta eru þau: Øystein Gjerde, Vigdís Diljá Óskarsdóttir, Stefán Bogi Sveinsson, Hlín Pétursdóttir Behrens, Hanna Sólveig Stefánsdóttir, Árni Friðriksson, Gyða Árnadóttir, Sólgerður Vala Kristófersdóttir og Auðbjörg Tinna Stefánsdóttir. Óttar Brjánn Eyþórsson smíðar leikmynd, Sigrún Einarsdóttir saumar búninga, Anna Gunnarsdóttir þæfir ull í steina, Katarzyna Strojnowska aðstoðar við leikmunagerð og Fjóla Egedía Sverrisdóttir og Heiðdís Halla Bjarnadóttir aðstoða við búningasaum. Sýningarstjóri er Erla Guðný Pálsdóttir og framleiðandi er Ragnhildur Ásvaldsdóttir fh Sláturhússins

Uppsetningin á Hollvættum á heiði er stærsta sviðslistaverkefni sem að Sláturhúsið hefur framleitt og í fyrsta sinn sem að vstyrkur hefur fengist úr Sviðslistasjóði fyrir atvinnuleikhús, en Sláturhúsið fékk fjórða hæsta styrkinn í síðustu úthlutun Sviðslistasjóðs þar sem að einungis 13 verkefni voru styrkt af þeimm 111 sem að sóttu um. Það er því mikil eftirvænting í loftinu og ljóst að mikil vinna er framundan á haustmánuðum bæði við æfingar og tæknivinnu. Það er einstaklega ánægjulegt að fá tækifæri til að frumsýna nýtt íslenskt barnaleikrit sem að skrifað er sérstaklega fyrir Sláturhúsið og ekki síður að frumsýna í nýjum sviðslistasal hússins. Þetta er þó ekki fyrsta leiksýningin sem að sýnd er í nýja sviðslistasalnum, þar hafa m.a. Leikfélag Fljótsdalshéraðs, Leikfélag ME, Þjóðleikhúsið, Íslenski Dansflokkurinn og fjölmargir sjálfstæðir leikhópar sýnt frá opnun hússins eftir endurbætur þann 22.september á síðasta ári

Verkefnið er unnið með styrk Sviðlistasjóðs, Sóknaráætlun Austurlands, Alcoa, SVN, Vök Baths og Icelandair.

Sýningardagskrá verður auglýst síðar. Fylgist vel með!

Getum við bætt efni þessarar síðu?