Fara í efni

Hvaðferðin á Djúpavogi

Sambúðin 10.-12. nóv 2023
Hvaðferðin er skemmtilegt og skapandi námskeið sem stuðlar að því að veita börnum og unglingum tækifæri til þekkja og nýta hæfileika sína, hugmyndir, hugrekki og sköpunarkraft betur.
Námskeiðið er í 8 klst. kennt í Sambúð á Djúpavogi:
föstudaginn 10. nóv kl. 16-18
laugardaginn 11. nóv kl. 12-15
sunnudaginn 12. nóv kl. 12-15
 
Þátttakendur hanna sínar eigin ofurhetjur í gegnum ýmiskonar listsköpun td. teikna, lita, mála, föndra, klippa, líma, leika og fleira en á sama tíma læra þau hönnunarferla, lausnamiðun, öflugar samskipta aðferðir og öðlast meiri sjálfsþekkingu.
Umsjónakona og hugmyndasmiður námskeiðanna er Ágústa Margrét Arnardóttir, en hugmyndina fékk hún þegar hún nam marþjálfun í Háskólanum í Reykjavik árið 2019. Síðan þá hefur hún gefið út hvetjandi og valdeflandi barna- og ungmennatímarit, hvetjandi plaköt, haldið námsekið og fyrirlestra, talað í hlaðvörpum, haldið úti ferðabloggi og fleira sem byggist á
öflugum spurningum eins og:
"Hvað vil ég? Hvað þarf ég? Hvað ætla ég að gera?"
 
Námskeiðin eru fyrir börn í 3.-7. bekk sem hafa áhuga á sköpun, hönnun, handverki, leik og föndri.
Nánari upplýsingar hjá Ágústu Margréti, agusta.coach@gmail.com, í gegnum messenger og í síma 8631475
Námskeiðin eru styrkt af Múlaþingi sem gerir það að verkum að börn í Múlaþingi geta sótt námskeiðin frítt í samstarfi við Bras, menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi: https://www.facebook.com/BRASAusturland
Getum við bætt efni þessarar síðu?