Jane Austen er einn áhrifamesti klassíski rithöfundur Bretlands og þó víðar væri leitað. Í vetur eru liðin 250 ár frá fæðingu hennar og hefur þess verið minnst víða.
Fyrir rösku ári var Aðdáendaklúbbur Jane Austen á Íslandi stofnaður og voru stofnfélagar um tvö hundruð. Kristín Linda Jónsdóttir sálfræðingur er formaður klúbbsins. Hún hefur víða haldið erindi um Jane Austen og er fararstjóri í kvennaferðum: Í fótspor Jane Austen á vegum ferðaskrifstofunnar Skotgöngu.
Nú kemur Kristín Linda austur og heldur erindi um Jane - ævi, verk og áhrif í nútímanum á Bókasafni Múlaþings, Egilsstöðum.
Öll velkomin.
Viðburðurinn hlaut Menningarstyrk frá Múlaþingi og er styrktur af Bókasafnasjóði sem hluti af verkefninu Læsi á stöðu og baráttu kvenna.
Sjá viðburð á Facebook: https://fb.me/e/88A0XYV0B
