Verið velkomin á opnun nýrrar sýningar á Vesturvegg, Skaftfelli Bistró, föstudaginn 10.apríl kl. 17:00.
Skaflar eftir Garðar Bachmann er ljósmyndasýning. Myndaröðin er um snjóruðninga sem myndast við vetrarþjónustu á vegum Seyðisfjarðarbæjar. Þeir verða til þegar þungavinnuvélar ryðja snjó af leiðum, en taka á sig form sem minna á skúlptúra—eins konar minnisvarða mótaða af endurtekningu, afli og nauðsyn.
Þeir sem stýra vélunum eru heimamenn, en verk þeirra (skaflarnir) mynda þessi form sem eru tímabundin og síbreytileg sem mótast svo áfram af veðri og mannlegum afskiptum.
Með því að mynda snjóruðningana setur Garðar þá í ramma, beinir athygli að þeim og dregur fram spurningar um höfundarvald og athygli. Hver skapar verkið, gröfumennirnir, umhverfið eða sjálf myndatakan?