Myndlistarkonan Elín Elísabet sýnir verk sín í Glettu, sýningarrými í Borgarfjarðarhöfn. Sýningin ber yfirskriftina Sækja heima og er sú þriðja í sýningarröð Elínar Elísabetar í Glettu. Verkin eru máluð í Álfaborginni á Borgarfirði og sýna lággróður og grjót, fléttur og skófir, innilegt samtal við umhverfið. Ljóð spila stórt hlutverk í málverkunum og ef vel er að gáð sjást prentaðar línur innan um pensilstrokurnar.
Elín Elísabet (f. 1992) er myndlistarmaður og teiknari sem ver sumrunum sínum í að mála úti í móa. Elín hefur verið tíður gestur á Borgarfirði eystri frá árinu 2011, þegar hún fékk fyrir hálfgerða tilviljun vinnu í Fiskverkun Kalla Sveins. Meiri upplýsingar má finna á www.elinelisabet.com.
Sýningin er styrkt af Múlaþingi.