Fara í efni

Ritlistarsmiðja fyrir 16-25 ára

Vegahúsið Ungmennahús 23. mars 2026 kl. 17:00-20:00

Mánudaginn 23. mars verður ritlistarsmiðja fyrir 16-25 ára í Vegahúsinu á Egilsstöðum. Smiðjan er ætluð ungu fólki á aldrinum 16-25 ára sem hefur áhuga á ritlist og er því að kostnaðarlausu.

Frábært tækifæri til að læra eitthvað nýtt, hitta önnur skáld, kynnast verkum þeirra og jafnvel lesa upp sín eigin verk. Leiðbeinandi verður Kris Funi Elínar Gunnars.

Kris er bókmenntafræðingur að mennt með meistarapróf í ritlist. Hán hefur komið víða við, skrifað bæði örsögur, smásögur og skáldsögur og síðastliðin ár hefur hán einnig starfað við prófarkalestur, ritstjórn og þýðingar. Verk háns hafa komið út undir merkjum Blekfjelagsins, félags nema í ritlist.

Smiðjan hefst klukkan 17:00 og stendur til klukkan 20:00.

Boðið verður upp á veitingar í hléi.

Skráning á smiðjuna: https://forms.cloud.microsoft/e/0Mu26SnYf0?origin=lprLink

Verkefnið er samstarfsverkefni Bókasafns Múlaþings og Vegahússins ungmennahúss og er styrkt af Uppbyggingarsjóði Austurlands.

Sjá viðburð á Facebook: https://fb.me/e/8uEu4FbwU

Ritlistarsmiðja fyrir 16-25 ára

Getum við bætt efni þessarar síðu?