Rannís, Samband íslenskra sveitarfélaga og Austurbrú standa fyrir opnum fundi á Egilsstöðum þann 30. nóvember næstkomandi.
Á fundinum verður fjallað um sóknartækifæri fyrir íslenska aðila í Evrópuáætlanir á sviði umhverfis-, orku- og loftslagsmála, og þá þjónustu sem umsækjendum stendur til boða. Þá mun Austurbrú einnig deila reynslu sinni af Evrópuverkefnum. Fundurinn er opinn öllum sérstaklega eru aðilar boðnir velkomnir sem eru að stíga sín fyrstu skref í sjóðasókn, hvort sem eru fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, félagasamtök, háskólar eða aðrir.
Dagskrá:

Almennt um Evrópustyrki og aðkomu Íslands að þeim

Horizon Europe – Rannsókna- og nýsköpunaráætlun ESB

LIFE – Umhverfis- og loftslagsáætlun ESB

European City Facility – Styrkir til að útbúa fjárfestingaráætlanir fyrir sveitarfélög vegna orkuskipta

Austurbrú – Reynslan af Evrópuverkefnum og lærdómur

Samband íslenskra sveitarfélaga í Evrópuverkefnum – Ólíkar leiðir til samstarfs og þátttöku

Þjónusta Rannís og fyrstu skrefin í sjóðasókn
Nánari upplýsingar:

Mánudagur 30. nóvember kl. 14:00 -15:30

Hótel Hérað, Miðvangur 1-7, Egilsstaðir (einnig streymt á Teams)