Fara í efni

Sumardvöl í sveit: Sætt, súrt og heimabakað

HÍ Hallormsstað 22. apríl 2026 kl. 13:00-15:00

Miðvikudaginn 22. apríl verður opinn fyrirlestur í Háskóla Íslands á Hallormsstað um sumardvöl barna í sveit.

Jónína Einarsdóttir, prófessor emeríta í mannfræði og Geir Gunnlaugsson, prófessor emerítus í hnattrænni heilsu, segja frá niðurstöðum rannsóknarverkefnis um sumardvöl íslenskra barna í sveit á 20. öld. Í tengslum við rannsóknina voru gefnar út bækurnar Send í sveit – þetta var í þjóðarsálinni og Send í sveit. Súrt, saltað og heimabakað.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um sögu siðarins og fjölbreytta reynslu barna af sumardvöl í sveit. Fjallað verður um samfélagslegt og menningarlegt samhengi sveitadvalar, daglegt líf barnanna og minningar þeirra af dvölinni. Meðal þess sem komið verður inn á eru náttúran, dýrin, störfin, leikurinn, dráttarvélarnar, matarvenjur og samskipti við húsráðendur og annað heimafólk.

Fyrirlesturinn hefst klukkan 13:00 í Höllinni í Hallormsstaðaskóla, að honum loknum verður tími fyrir spurningar og spjall til klukkan 15:00.

Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar frá Brauðdögum deighúsi.

Verið öll velkomin!

Getum við bætt efni þessarar síðu?