Verið velkomin á sýningaropnun myndlistarnema LHÍ í Skaftfelli á föstudaginn 26. janúar klukkan 17.00 til 20.00 í galleríi Skaftfells.
Sýningin 'Bátur, setning, þriðjudagur' er afrakstur tveggja vikna dvöl á Seyðisfirði þar sem hópur þriðja árs myndlistarnema úr Listaháskóla Íslands hafa unnið hörðum höndum undir leiðsögn Gunnhildar Hauksdóttur myndlistamanns, sem dvaldi sjálf á Seyðisfirði árið 2002 ásamt samnemendum sínum í LHÍ þegar sambærileg vinnustofudvöl var haldinn í fyrsta sinn undir handleiðslu Björns Roth.
Mörg listamannanna eru að vinna með Seyðisfjörð sjálfan, söguna og landslagið, fundið efni af svæðinu, ljósmyndir og málverk af heimamönnum og fjöllum. Eftir sögustund Péturs Kristjánssonar vaknaði t.a.m. áhugi á fjarskiptasögu Seyðisfjarðar og morskóðun. Það stefnir í lifandi flutning á opnuninni með nýstofnuðum Morskór, jafnvel með aðkomu heimamanna. Allir eru hjartanlega velkomnir.
Listafólkið sem tekur þátt eru þau Axel Gústavsson, Bjartur Elí Ragnarsson, Elín Elísabet Einarsdóttir, Gabriel Backman Waltersson, Hekla Kollmar, Íris Eva Ellenar-Magnúsdóttir, Ísabella Lilja J. Rebbeck, Ívar Ölmu Hlynsson, Katla Björk, Kata Jóhanness, Ráðhildur Ólafsdóttir, Saga Líf Sigþórdóttir og Tómas van Oosterhout