Fara í efni

Heimastjórnir

Heimastjórnir eru fastanefndir innan sveitarfélagsins Múlaþings og starfa í umboði sveitarstjórnar. Í hverri heimastjórn eru þrír fulltrúar og með hverri heimastjórn starfar starfsmaður sem er fulltrúi sveitarstjóra á viðkomandi svæði. Heimastjórnir eru eftirfarandi:

  • Heimastjórn Borgarfjarðar
  • Heimastjórn Djúpavogs
  • Heimastjórn Fljótsdalshéraðs
  • Heimastjórn Seyðisfjarðar

Umdæmi hverrar heimastjórnar miðast við sveitarfélagamörk gömlu sveitarfélaganna Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar.

Markmið heimastjórna er að tryggja áhrif og aðkomu heimamanna á hverjum stað að ákvörðunum sem varða þeirra nærumhverfi. Heimastjórn annast þau störf sem sveitarstjórn felur henni og snýr að viðkomandi byggðahluta.

Heimastjórn getur ályktað um málefni byggðarinnar og þannig komið málum á dagskrá sveitarstjórnar. Helstu verkefni heimastjórna snúa að deiliskipulags- og umhverfismálum, menningarmálum, landbúnaðarmálum og umsögnum um staðbundin málefni og leyfisveitingar.

Nánari lýsingu á verkefnum heimastjórna má finna í 48. gr. Samþykktar um stjórn og fundarsköp Múlaþings.

Framboð til heimastjórnar

Kosningarétt og kjörgengi í kosningum til heimastjórna hafa íbúar viðkomandi hluta sveitarfélagsins, samkvæmt kjörskrá. Það þýðir að allir þeir sem eru á kjörskrá á viðkomandi svæði eru í framboði til heimastjórnar.

Æskilegt er að þeir sem vilja gefa kost á sér kynni sig og sínar áherslur fyrir kjósendum í viðkomandi hluta sveitarfélagsins.

Þar sem kjósendur þurfa að skrá nafn og heimilisfang á kjörseðilinni, er mikilvægt að hafa þær upplýsingar aðgengilegar.

Kosningar til heimastjórnar

Tveir fulltrúar og tveir til vara skulu kosnir beinni kosningu íbúanna á viðkomandi svæði, þ.e. við heimastjórnarkosningar. Heimastjórnarkosningar fara fram samhliða sveitarstjórnarkosningum og eru kjörstaðir þeir sömu. Kjörstaðir verða í hverjum hluta sveitarfélagsins samkvæmt eldri sveitarfélagamörkum og kjördeildir taka mið af því.

Hægt er að kjósa utankjörfundar hjá sýslumönnum og sendiráðum og á skrifstofum sveitarfélagsins á Borgarfirði og Djúpavogi.

Hver kjósandi kýs einn fulltrúa í heimastjórn

Kjósandi skrifar á kjörseðil fullt nafn og heimilisfang þess sem hann kýs. Aðeins skal skrifa eitt nafn á kjörseðilinn. Þeir tveir einstaklingar sem fá flest atkvæði eru kjörnir aðalmenn og varamenn þar á eftir í samræmi við fjölda atkvæða. Á kjörstað verða kjörskrár aðgengilegar kjósendum til að sjá hverjir eru kjörgengir í heimastjórn

Einn fulltrúi og annar til vara eru kjörnir af sveitarstjórn og skulu þeir vera aðalfulltrúar í sveitarstjórninni. Kjör þeirra fer fram á sama fundi og sveitarstjórn kýs fulltrúa í fastanefndir og ráð. Sveitarstjórn kýs formann úr hópi aðalmanna í heimastjórn á þeim sama fundi.

Nánari lýsingu á kjöri í heimastjórnir má finna í 36. gr. Samþykktar um stjórn og fundarsköp sveitarfélagsins.

Talning atkvæða og úrslit

Á kjörstað skulu vera sérstakir atkvæðakassar vegna heimastjórnarkosninga. Atkvæðatalning fer fram á vegum yfirkjörstjórnar. Úrslit kosninga skulu kynnt þegar þau liggja fyrir. Yfirkjörstjórn skal tilkynna aðalmönnum og varamönnun um kosningu þeirra.

Síðast uppfært 27. apríl 2022
Getum við bætt efni þessarar síðu?