Sveitarstjórn Djúpavogshrepps: Fundargerð 25.06.2013
3. aukafundur 2010 – 2014
Aukafundur var haldinn í sveitarstjórn Djúpavogshrepps þriðjudaginn 25. júní 2013 kl. 16:00. Fundarstaður: Geysir.
Mættir voru: Andrés Skúlason, Albert Jensson, Ingibjörg Bára Gunnlaugsdóttir, Sóley Dögg Birgisdóttir og Þórdís Sigurðardóttir. Einnig sat fundinn Gauti Jóhannesson, sveitarstjóri. Andrés stjórnaði fundi.
Oddviti óskaði eftir að liður 3 yrði tekin á dagskrá samþykkt samhljóða.
Dagskrá:
1. Stjórn og fundarsköp Djúpavogshrepps
Sveitarstjóri lagði fram til síðari umræðu nýjar samþykktir um stjórn og fundarsköp Djúpavogshrepps. Að lokinni umfjöllun voru tillögurnar bornar upp og samþykktar samhljóða og í framhaldi af því settu fundarmenn upphafsstafi sína undir skjalið. Sveitarstjóra falið að koma samþykktinni til staðfestingar ráðherra og síðan til birtingar í Stjórnartíðindum.
2. Breyting á aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020.
Þar sem engar ábendingar höfðu borist áður en frestur rann út þann 10. júní síðastl. vegna breyttrar legu Axarvegar ( Háubrekka að Reiðeyri) samþykkir sveitarstjórn lýsingu með breytingu á aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020 og felur sveitarstjóra að senda hana til umsagnar og eftirfylgni til eftirfarandi stofnana: Skipulagsstofnun, Umhverfisstofnun, Vegagerðinni og Veiðimálastofnun.
3. Fræðslu – og jafnréttisnefnd
1. Skóladagatal staðfest.
Sveitarstjóra og skólastjóra falið að vinna að húsnæðismálum leikskólans og vinna sömuleiðis að frágangi ráðningarmála hjá Djúpavogsskóla.
2. Sveitarstjóra falið að kanna kjörgengi nefndarmanna í fræðslunefnd í samráði við lögfræðisvið SÍS. Að öðru leyti lögð fram til kynningar.
Fleira ekki fyrir tekið. Fundi slitið kl. 17:00.
Fundargerðin, sem færð var í tölvu, lesin upp, staðfest, prentuð út og síðan undirrituð.