Sveitarstjórn Djúpavogshrepps: Fundargerð 17.07.2014
3. fundur 2014 – 2018
Fundur var haldinn í sveitarstjórn Djúpavogshrepps mánudaginn 17.07 2014 kl. 16:30.
Fundarstaður: Geysir.
Mætt voru: Andrés Skúlason, Sóley Dögg Birgisdóttir, Kristján Ingimarsson, Rán Freysdóttir og Júlía Rafnsdóttir. Einnig sagt fundinn Gauti Jóhannesson sveitarstjóri.
Dagskrá:
1. Breytingar á samþykktum um stjórn og fundarsköp Djúpavogshrepps, síðari umræða.
Fjallað hafði verið um tillögur að breytingum F og Ó lista á nefndakerfi sveitarfélagsins og erindisbréfum. Að lokinni umfjöllun var Samþykkt um stjórn og fundarsköp borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða. Fyrir fundinum lágu einnig tilnefningar F og Ó lista um skipan í fastanefndir. Samþykkt samhljóða að eftirfarandi fastanefndir verði starfandi af hálfu sveitarfélagsins kjörtímabilið 2014 – 2018. Sveitarstjóra falið að senda tilkynningu þess efnis á þá einstaklinga sem tilnefndir hafa verið.
Hafnarnefnd
Aðalmenn:
Sigurjón Stefánsson form.
Sigurður Á Jónsson
Óskar Ragnarsson varaform.
Varamenn:
Brynjólfur Reynisson
Stefán Þór Kjartansson
Óðinn Sævar Gunnlaugsson
Fræðslu- og tómstundanefnd
Aðalmenn:
Sóley Dögg Birgisdóttir form.
Berta Björg Sæmundsdóttir
Elísabet Guðmundsdóttir
Helga Rún Guðjónsdóttir varaform.
Óðinn Sævar Gunnlaugsson
Varamenn:
Pálmi Fannar Smárason
Magnús Hreinsson
Hafdís Reynisdóttir
Birgir Th. Ágústsson
Júlía Hrönn Rafnsdóttir
Skipulags-, framkvæmda- og umhverfismálanefnd
Aðalmenn:
Andrés Skúlason form.
Ingibjörg Bára Gunnlaugsdóttir
Magnús Kristjánsson
Kári Snær Valtingojer varaform.
Ester Sigurðardóttir
Varamenn:
Albert Jensson
Þórdís Sigurðardóttir
Þór Vigfússon
Óskar Ragnarsson
Rán Freysdóttir
Atvinnumálanefnd
Aðalmenn:
Rán Freysdóttir form.
Júlía Hrönn Rafnsdóttir
Sveinn Kristján Ingimarsson
Guðbjört Einarsdóttir varaform.
Þórir Stefánsson
Varamenn:
Ester Sigurðardóttir
Óskar Ragnarsson
Svavar Pétur Eysteinsson
Lilja Dögg Björgvinsdóttir
Sóley Dögg Birgisdóttir
Ferða- og menningarmálanefnd
Aðalmenn:
Sveinn Kristján Ingimarsson form.
Þorbjörg Sandholt
Hörður Ingi Þórbjörnsson varaform.
Varamenn:
Þór Vigfússon
Berglind Häsler
Rán Freysdóttir
Landbúnaðarnefnd
Aðalmenn:
Steinþór Björnsson form.
Guðný Gréta Eyþórsdóttir varaform.
Gautur Svavarsson
Varamenn:
Guðmundur Eiríksson
Baldur Gunnlaugsson
Guðmundur Valur Gunnarsson
Starfshópur um fjárhagsleg málefni
Sóley Dögg Birgisdóttir
Kári Snær Valtingojer
Gauti Jóhannesson
Kjörstjórn
Egill Egilsson form.
Berglind Einarsdóttir
Bergþóra Birgisdóttir varaform.
Til vara:
Ásdís Þórðardóttir
Unnþór Snæbjörnsson
Ólafur Áki Ragnarsson
Endurskoðendur
KPMG - Endurskoðun hf
Til eins árs
Tveir aðalmenn og tveir til vara á aðalfund SSA
Sóley Dögg Birgisdóttir
Kári Snær Valtingojer
Kristján Ingimarsson
Andrés Skúlason
Einn fulltrúi og annar til vara á aðalfund Skólaskrifstofu Austurlands
Halldóra Dröfn Hafþórsdóttir
Helga R Guðjónsdóttir
Einn fulltrúi og annar til vara á aðalfund Heilbrigðiseftirlits Austurlands
Kristján Ingimarsson
Birgir Th Ágústsson
Til fjögurra ára
Fulltrúi á Landsþing samb. ísl. Sveitarfélaga og annar til vara.
Gauti Jóhannesson
Rán Freysdóttir
Félagsmálanefnd (samstarfsvettvangur sveitarfélaga)
Júlía Hrönn Rafnsdóttir
Stjórn Héraðsskjalasafns Austurlands (samstarfsvettvangur sveitarfélaga)
Þorbjörg Sandholt
Stjórn Skólaskrifstofu Austurlands
Gauti Jóhannesson
Sóley Dögg Birgisdóttir
Stjórn Heilbrigðiseftirlits Austurlands
Andrés Skúlason
Stjórn Nönnusafns
Þorbjörg Sandholt Rán Freysdóttir
Stjórn Ríkarðshúss
Andrés Skúlason
Þór Vigfússon
Gauti Jóhannesson
2. Erindi og bréf
a) Fjármála- og efnahagsráðuneytið, vatnsréttindi í Fossá, dags. 9. júlí 2014. Óskað er eftir afstöðu Djúpavogshrepps til þess hvort sveitarfélagið telji það í þágu þess að samið verði um vatnsréttindi ríkisins til Iceland Beverage Company ehf. áður en sameigendur réttindanna hafa samið.
Þar sem frekari upplýsingar skortir um verkefnið þá er sveitarstjórn samhljóða sammála um að fela sveitarstjóra að kalla eftir upplýsingum frá viðkomandi aðilum um áform sín, umfang verkefnisins og fyrirætlan svo hægt sé að meta áhrifin og þá hvort verkefnið sé í þágu sveitarfélagsins. Sveitarstjórn telur sömuleiðis mikilvægt að leitað verði álits landeigenda.
b) Skipulagsstofnun, beiðni um umsögn á allt að 24.000 tonna framleiðslu á laxi og regnbogasilungi í sjókvíum í Fáskrúðsfirði og Berufirði, þar af 6000 tonna aukningu í Berufirði, dags. 3. júlí 2014. Undir þessum lið vék Kristján Ingimarsson af fundi og Þorbjörg Sandholt tók sæti hans. Afgreiðslu málsins var frestað á síðasta fundi sveitarstjórnar.
Sveitarstjórn er sammála um að umrædd stækkun sé í þágu uppbyggingar atvinnulífs á svæðinu, auk þess mun frekari stækkun tryggja svigrúm til þess að einstök fiskeldissvæði í Berufirði verði hvíld og þannig komið í veg fyrir hugsanleg og óæskileg umhverfisáhrif vegna uppsöfnunar úrgangs á sjávarbotni. Sveitarstjórn treystir því að fagstofnanir sem hafa fengið áætlunina til umsagnar taki til skoðunar þá þætti máls sem sveitarstjórn sem slík hefur ekki faglegar forsendur til að meta. Sveitarstjórn lítur að öðru leiti svo á að mikilvægt sé að vinna að uppbyggingu fiskeldis í Berufirði í sátt við umhverfi og samfélag sbr smábátasjómenn, landeigendur og fleiri hagsmunaaðila.
Undir þessum lið kynnti oddviti áhugavert verklag sem sveitarfélög á strandsvæðum á Vestfjörðum hafa tekið sig saman um að vinna með stuðningi Sóknaráætlunar landshlutanna. Um er að ræða svokallaða nýtingaráætlun fyrir strandsvæði m.a.vegna hefðbundinna fiskveiða, uppbyggingar á fiskeldi og annari starfsemi í og við firði vestra. Sveitarstjórn sammála um að vísa málinu til frekari umfjöllunar í skipulags- framkvæmda og umhverfisnefnd. Þorbjörg yfirgaf fundinn og Kristján tók sæti sitt aftur.
3. Viðauki við fjárhagsáætlun 2014. Tilfærslur og breyting á rekstrarútgjöldum:
- I. Fjárhagsleg endurskipulagning og ráðgjöf.
Á fundi sveitarstjórnar 30.06.2014 var sveitarstjóra falið að ganga til samninga við R3 Ráðgjöf um fjárhagslega endurskipulagningu og ráðgjöf.
Áhrif: Heildarkostnaður með vsk. er áætlaður 3.000.000 og kemur til lækkunar á handbæru fé.
- II. Tækjakaup
Fjárfest verður í þökuskurðarvél fyrir sveitarfélagið sem ekki var gert ráð fyrir í fjárhagsáætlun 2014. Áhrif: Fjárfestingaráætlun 2014 hækkar um 1.499.976 kr. og kemur til lækkunar á handbæru fé.
Heildaráhrif viðauka
Samþykkt viðauka hefur í för með sér nettó hækkun fjárheimilda til fjárfestinga að fjárhæð 1.499.976 kr. sem mætt verður annars vegar með nýtingu á því handbæra fé sem sveitarfélagið hefur til umráða. Rekstrargjöld munu hækka nettó um 3.000.000 kr. og koma rekstararáhrif til lækkunar á afkomu ársins. Breytingar afskrifta, verðbóta og annarra afleiddra liða sem tengjast ofangreindum breytingum færast á afkomu ársins. Viðauki við fjárhagsáætlun Djúpavogshrepps fyrir árið 2014 er gerður í samræmi við 2. mgr., 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
4. Skýrsla sveitarstjóra
a) Malbikunarframkvæmdir. Stefnt er að því að malbika Hraun 20.-22. júlí. Í framhaldinu verður farið að huga að lagningu gangstéttar.
b) Starfsmannamál. Sveitarstjóri gerði grein fyrir starfslokum Ugniusar Hervars Didziokas sem sagt hefur upp starfi sínu sem ferða- og menningarmálafulltrúi og mun láta af störfum 1. september. Stefnt er að því að auglýsa starfið og verður nánari ákvörðun þar um tekin fljótlega. Einnig er stefnt að því að auglýsa fljótlega starf í Tryggvabúð þar sem dagvist og félagsstarf eldri borgara verður til hús frá og með 1. september. Gert er ráð fyrir einni 100% stöðu eða tveimur 50%.
c) Myndlistarsýning í samstarfi við Kínversk-evrópsku menningarmiðstöðina. Sveitarstjóri gerði grein fyrir opnun sýningarinnar Rúllandi snjóbolti 5/Djúpivogur sem haldin var í samstarfi við Kínversk-evrópsku menningarmiðstöðin. Sýningin verður opin til og með 15. ágúst. Ekki liggur fyrir endanlegur kostnaður vegna hennar en Menningarráð Austurlands styrkti viðburðinn um 800.000 kr.
d) Vegagerð í Búlandsdal. Sveitarstjóri gerði grein fyrir nýlegum framkvæmdum við veginn í Búlandsdal. Þar var framkvæmt fyrir 1.500.000 kr. sem fengust úr Styrkvegasjóði.
d) Lokun skrifstofu. Skrifstofa sveitarfélagsins verður lokuð frá 21. júlí og opnar aftur að loknu sumarleyfi 18. ágúst.
Fleira ekki fyrir tekið. Fundi slitið kl. 18:30
Fundargerðin færð í tölvu, lesin upp, staðfest, prentuð út og síðan undirrituð.
Fundarritari Kristján Ingimarsson.