Fara í efni

Hreppsnefnd Borgarjarðar

8. fundur 13. maí 2011

Hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps kom saman til 8. fundar á árinu 2011 föstudaginn 13. maí kl: 13 í Hreppsstofu, fundurinn var aukafundur. Mættir hreppsnefndarmennirnir Jakob, Ólafur, Jón Sigmar, Jón Þórðarson og varamaðurinn Bjarni Sveinsson.

 

  1. Ársreikningur Borgarfjarðarhrepps 2010 síðari umræða.

Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 97,0 millj. kr. fyrir A og B hluta, en þar af námu rekstrartekjur A hluta 91,3 millj. kr. Álagningarhlutfall útsvars var 13,28% sem er lögbundið hámark. Álagningarhlutfall fasteignaskatts í A flokki var 0,36% en lögbundið hámark er 0,625% með álagi. Í B flokki var álagningarhlutfallið 1.32% sem er lögbundið og í C flokki var álagningarhlutfallið 1,0% en lögbundið hámark er 1,65% með álagi. Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins í A og B hluta var jákvæð um 0,9 millj. kr., en rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 1,9 millj. kr. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2010 nam 158,5 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi fyrir A og B hluta, en eigið fé A hluta nam 152,0 millj. kr. Veltufé frá rekstri í A hluta var 7,9 millj. kr. og veltufé frá rekstri A og B hluta var 11,3 millj. kr. Handbært fé í árslok var 30,8 millj. kr.

Ársreikningurinn samþykktur einróma.

 

Fundi slitið kl. 1345

 

Fundargerð ritaði Jón Þórðarson.

Getum við bætt efni þessarar síðu?