Fara í efni

20. fundur Sveitarstjórnar Múlaþings

Mynd af Birni Ingimarssyni

Björn Ingimarsson er sveitarstjóri Múlaþings og gegnir einnig starfi hafnarstjóra Hafna Múlaþings.

Björn er með meistaragráðu í Þjóðhagfræði frá Gautaborgarháskóla. Hann hefur margra ára reynslu sem stjórnandi og ráðgjafi í atvinnurekstri bæði hér á landi og erlendis en undanfarin ár hefur hann einkum starfað á vettvangi sveitarstjórnarmála.

Björn starfaði sem sveitarstjóri Þórshafnarhrepps árin 2001 – 2006, sem sveitarstjóri Langanesbyggðar árin 2006 – 2009, sem bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs frá því í júlí 2010 þar til í september 2020 og sem sveitarstjóri Múlaþings frá því í október 2020.

Björn er giftur Sigrúnu Jónu Óskarsdóttur, förðunarfræðingi, og eiga þau sex börn.

Sveitarstjóri situr í eftirtöldum nefndum / stjórnum fyrir hönd sveitarfélagsins:

  • Stjórn Eignarhaldsfélags Brunabótarfélags Íslands
  • Stjórn Sveitarfélaga á köldum svæðum
  • Stjórn Vísindagarðsins ehf
  • Stjórn Ársala bs
  • Stjórn Brunavarna á Héraði bs
  • Almannavarnarnefnd Austurlands

 

Ráðningarsamningur sveitarstjóra

08.02.2022 Fréttir Tilkynningar frá bæjarstjóra

20. fundur Sveitarstjórnar Múlaþings verður haldinn í fundarsal sveitarstjórnar, Lyngási 12 Egilsstöðum, 9. febrúar 2022 og hefst klukkan 14:00.

Hlekkur á fundinn

 

Dagskrá:

Erindi :
1. 202112192 - Reglur byggðar á 7. grein reglurgerðar um fasteignaskatt nr. 1160 frá 2005
2. 202201013 - Vefstefna Múlþings
3. 202111071 - Aðalskipulagsbreyting, Egilsstaðir, þétting byggðar í Einbúablá og Mánatröð
4. 202104062 - Húsnæðisáætlun og skipulagsmál
5. 202108056 - Hamarsvirkjun.
6. 202201144 - Opinber störf á landsbyggðinni
7. 202111213 - Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga
8. 202012037 - Skýrslur heimastjórna

Fundargerðir :
9. 2201009F - Byggðaráð Múlaþings - 41
10. 2201016F - Byggðaráð Múlaþings - 42
11. 2201020F - Byggðaráð Múlaþings - 43
12. 2201012F - Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 43
13. 2201017F - Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 44
14. 2201022F - Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings - 45
15. 2201008F - Fjölskylduráð Múlaþings - 35
16. 2201021F - Fjölskylduráð Múlaþings - 36
17. 2201006F - Heimastjórn Borgarfjarðar - 19
18. 2201024F - Heimastjórn Borgarfjarðar - 20
19. 2201005F - Heimastjórn Seyðisfjarðar - 19
20. 2201003F - Heimastjórn Fljótsdalshéraðs - 17
21. 2201004F - Heimastjórn Djúpavogs - 22
22. 2201014F - Ungmennaráð Múlaþings - 11

Almenn erindi :
23. 202010421 - Skýrsla sveitarstjóra

 

Í umboði forseta sveitarstjórnar,
Björn Ingimarsson, sveitarstjóri

20. fundur Sveitarstjórnar Múlaþings
Getum við bætt efni þessarar síðu?