Fara í efni

Grenndarkynning á Djúpavogi, Minnisvarði

25.06.2021 Fréttir Skipulag í auglýsingu

Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings hefur falið skipulagsfulltrúa að auglýsa fyrirhugaða framkvæmd í samræmi við ákvæði 4. mgr. 6. gr. laga nr. 87/2015 um verndarsvæði í byggð.

Fyrirhuguð framkvæmd felst í uppsetningu á minnismerki um Hans Jónatan, verslunarmann á Djúpavogi, á Kallabakka. Fyrirhugað framkvæmdasvæði tilheyrir miðsvæði skv. Aðalskipulagi Djúpavogshrepps 2008-2020 og fellur það undir hverfisvernd. Svæðið tilheyrir einnig verndarsvæði í byggð sem staðfest var 15. október 2017. Öll uppbygging skal taka mið af þeirri stefnu og skilmálum sem sett eru fram um svæðið í verndartillögu.

Undirstaðan verður hringlaga úr steypu og um 320 sm í þvermál. Þar ofan á kemur stöpull úr granít; 110 x 100 sm að þvermáli og um 20 sm á hæð. Súla, 50 x 50 á breidd og 180 sm á hæð, og loks 80 sm hár glertoppur.

Í meðfylgjandi kynningargögnum má sjá staðsetningu og ásýnd fyrirhugaðra framkvæmda.

Athugasemdum og ábendingum skal skila í síðasta lagi þann 9. júlí 2021 í tölvupósti á netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is. Jafnframt er unnt að óska eftir frekari upplýsingum á sama netfangi. Þeir sem ekki gera athugasemdir fyrir tilgreindan tíma teljast samþykkir tillögunni.

Virðingarfyllst,

Skipulagsfulltrúi Múlaþings

 

Grenndarkynning á Djúpavogi, Minnisvarði
Getum við bætt efni þessarar síðu?