Fara í efni

Upplýsingar vegna Covid-19

21.09.2021 Fréttir Covid - 19

Niðurstaða úr sýnatöku á Reyðarfirði og Egilsstöðum sl. sunnudag liggur nú fyrir. Alls voru tekin um 50 sýni og reyndust öll neikvæð. Í dag er gert ráð fyrir að flestir þeirra sem verið hafa í sóttkví á Reyðarfirði fari í síðari sýnatöku og í kjölfar hennar, á miðvikudag, ætti staðan að skýrast nokkuð.

Alls eru nú um 250 í sóttkví á Austurlandi. Viðbúið er að einhverjir þeirra muni greinast smitaðir við síðari sýnatöku. Minnt er á að inn á www.covid.is má nálgast allar upplýsingar um þær reglur sem gilda um þá sem eru í sóttkví eða einangrun.

Vegna kosninga til Alþingis laugardaginn 25. september næst komandi hefur verið unnið að útfærslu á að þeir sem eru í sóttkví og einangrun geti kosið. Nánari upplýsingar um það má finna hér.

Tilkynning frá Aðgerðarstjórn á Austurlandi - covid 19
Getum við bætt efni þessarar síðu?