Fara í efni

Ert þú með frábæra hugmynd?

27.11.2023 Fréttir Borgarfjörður Djúpivogur Egilsstaðir Seyðisfjörður

Byggðarráð Múlaþings auglýsir til umsóknar styrki til menningarstarfs á árinu 2024 með umsóknarfresti til og með 20. desember 2023.

Múlaþing veitir menningarstyrki til einstaklinga, hópa, félagssamtaka, fyrirtækja og stofnana til almennrar liststarfsemi, viðburða eða verkefna. Umsækjendur skulu tengjast Múlaþingi með búsetu, með því að viðburðurinn fari fram í Múlaþingi eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi Múlaþings.

Stefnt er að því að afgreiðsla styrkumsókna liggi fyrir í lok janúar 2024.

Sótt er um styrk með rafrænum hætti á Mínum síðum sveitarfélagsins og fer innskráning þar fram með rafrænum skilríkjum eða Íslykli.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér reglur um úthlutun menningarstyrkja Múlaþings á heimasíðu sveitarfélagsins.

Athugið að breyting hefur orðið á úthlutunarferlinu um menningarstyrki og verða skyndistyrkir ekki afgreiddir. Þetta er fyrri úthlutun fyrir árið 2024. Til úthlutunar verða 7.912.000 kr. í þessari fyrri úthlutun og 1.978.000 kr. í seinni úthlutun sem verður auglýst í ágúst 2024. Styrkir eru að upphæð 50.000 - 500.000 kr.

Upplýsingar og ráðgjöf veitir Jónína Brá Árnadóttir verkefnastjóri menningarmála á jonina.arnadottir@mulathing.is eða í síma 4700 700.

 

EN / Do you have a great idea?

Múlaþing Executive Board calls for applications for cultural project grants for 2024. The application deadline is December 20th 2023.
Múlaþing cultural grant is intended for individuals, groups, associations, companies and institutions for artistic activities, events, or projects. Applicants must be connected to Múlaþing in some way, either through residence, that the event takes place at Múlaþing or includes a promotion for Múlaþing‘s cultural activities.

Grant applications will be processed in January 2024.

To apply please use the municipality Resident Portal (Mínar síður), and log in with Electronic ID or Íslykill.

Applicants are encouraged to familiarise themselves with the rules of Múlaþing‘s cultural grants on the municipality‘s website.

Please note that there has been a change in the allocation process for cultural grants, immediate grants outside of the grant deadline will not be processed. This is the first allocation for 2024, 7.912.000 kr. will be allocated in the first round. The second allocation will be for 1.978.000 kr. and will be advertised in August 2024.
Grants are in the amount of 50.000 - 500.000 kr.

For further information or advice please contact Jónína Brá Árnadóttir cultural project manager at jonina.arnadottir@mulathing.is or 4 700 700.

Ert þú með frábæra hugmynd?
Getum við bætt efni þessarar síðu?