Umhverfis- og framkvæmdaráð Múlaþings hefur falið skipulagsfulltrúa að framkvæma grenndarkynningu í samræmi við 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna byggingaáforma við Ránargötu 1 (L155212) á Seyðisfirði í tengslum við flutning á Wathnehúsinu frá Hafnargötu 44 að Ránargötu 1.
Wathnehúsið stendur að Hafnargötu 44 í um 6 m fjarlægð frá götu og er aðalhæð rúmlega þremur metrum hærri en Hafnargata. Við færslu hússins að Ránargötu 1 verður settur hærri kjallari undir húsið. Sjá nánar á meðfylgjandi afstöðumynd og aðaluppdrætti, dagsettum 18. mars 2026.
Athugasemdum og ábendingum skal skila í síðasta lagi þann 11. maí í gegnum Skipulagsgátt.
Jafnframt er unnt að óska eftir frekari upplýsingum á netfanginu skipulagsfulltrui@mulathing.is.