Leikfélag Menntaskólans á Egilsstöðum frumsýnir leikritið Fyrsti kossinn föstudaginn 20. febrúar í Sláturhúsinu á Egilsstöðum. Fyrsti kossinn er söngleikur eftir Brynju Ýr Júlíusdóttur og Guðlaug Ómar Guðmundsson byggður á tónlist eftir Rúnar Júlíusson.
Leikritið fjallar um líf og ástir meðlima hljómsveitarinnar Ásanna sem reyna að meika það með því að vinna eina stærstu hljómsveitarkeppni landsins, Músíktilraunir. Þegar aðalsöngkonan bregður sér til London eru góð ráð dýr og strákarnir í hljómsveitinni þurfa að finna sér nýja söngkonu og þá flækjast málin í lífi hljómsveitarmeðlima. Lifandi tónlist, söngur og dans einkenna sýninguna.
Miðasala á Tix.is (ef fólk á í erfiðleikum með að panta miða er hægt að senda tölvupóst á leikfelagidlme@gmail.com eða hringja í síma 896-2052 Ágúst Bragi).
Miðaverð:
- Almennt - 3.500 kr.
- 12 ára og yngri - 2.500 kr.
- Eldri borgarar og NME - 3.000 kr.
Sýningar:
- 20. febrúar kl. 20:00, frumsýning
- 21. febrúar kl. 16:00
- 22. febrúar kl. 16:00 og 20:00
- 24. febrúar kl. 20:00
- 25. febrúar kl. 20:00, lokasýning