Fara í efni

Deiliskipulagsbreyting, Grund við Stuðlagil – breytt lóðamörk

16.02.2026 Skipulag í auglýsingu Egilsstaðir Auglýsingar

Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi 5. febrúar 2026 að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi ferðaþjónustu í landi Grundar á Jökuldal, í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagstillagan er unnin af LOGG ehf. fyrir hönd landeigenda og felur í sér stækkun viðskipta- og þjónustulóðar um 2,7 ha. og fjölgun byggingarreita á lóðinni. Byggingarmagn helst óbreytt.

Skipulagstillagan er aðgengileg í gegnum Skipulagsgátt

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til og með 30. mars 2026. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is.

Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.

Deiliskipulagsbreyting, Grund við Stuðlagil – breytt lóðamörk
Getum við bætt efni þessarar síðu?