Heimastjórn Fljótsdalshéraðs samþykkti á fundi 5. febrúar 2026 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Gilsárvirkjun í Eiðaþinghá, í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsáætlunin er unnin af EFLU verkfræðistofu fyrir hönd Orkusölunnar ehf. í tengslum við fyrirhugaða 6,7 MW vatnsaflsvirkjun. Framkvæmdin felur í sér gerð stíflu og miðlunarlóns, byggingu stöðvarhúss, lagningu vegslóða, aðrennslispípu og safnlagna. Áætluð efnisþörf er 65.000 m3.
Skipulagstillagan er aðgengileg í gegnum Skipulagsgátt
Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna til og með 30. mars 2026. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið skipulagsfulltrui@mulathing.is.
Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.