Fara í efni

Sjómannadagurinn á Djúpavogi

25.04.2023 Fréttir Djúpivogur

Á vegum samráðshóps um Cittaslow er nú unnið að því að safna saman myndefni í tengslum við sjómannadaginn á Djúpavogi. Stefnt er að því að halda myndasýningu í Löngubúð laugardaginn fyrir sjómannadaginn og rifja upp viðburði og gleðistundir í tengslum við hátíðisdaginn frá liðnum árum. Þau sem eiga myndefni, hvort sem það er á VHS eða ljósmyndir, eru hvött til að hafa samband við fulltrúa sveitarstjóra í Geysi eða einhverjar úr hópnum sem fyrst. Leggjumst nú öll á árarnar í leitinni að skemmtilegu myndefni og stefnum saman að fjörugri sjómannadagshelgi.

Sjómannadagurinn á Djúpavogi
Getum við bætt efni þessarar síðu?