Fara í efni

Upplýsingar vegna rýminga á Seyðisfirði

07.04.2024 Fréttir Seyðisfjörður

Enn er gert ráð fyrir áframhaldandi úrkomu og skafrenningi fram til morguns. Heldur lægir þá tímabundið en von er á öðrum úrkomubakka á morgun. Úrkoma á Seyðisfirði og í Neskaupstað hefur þó ekki verið mikil. Flestir fjallvegir á Austurlandi eru enn lokaðir og rýmingar frá í gær á Seyðisfirði og í Neskaupstað eru óbreyttar. Vegir innanbæjar eru enn opnir. Ekki er talin hætta utan rýmdra svæða.

Aðgerðastjórn hvetur ferðalanga sem fyrr til að kanna vel með færð og veður áður en haldið er af stað. Lítið ferðaveður er í fjórðungnum. Veðurstofa metur stöðuna að nýju í fyrramálið.

Vakin er athygli á hjálparsíma Rauða krossins í síma 1717, sem opinn er allan sólarhringinn ef fólk vill ræða líðan sína.

Upplýsingar vegna rýminga á Seyðisfirði
Getum við bætt efni þessarar síðu?