Fara í efni

Íbúðir á Borgarfirði auglýstar til leigu

13.03.2024 Fréttir Borgarfjörður

Múlaþing auglýsir íbúðir á Borgarfirði til leigu, opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir íbúðir að:

  • Ásbrún 2, 107 m2, 4 herbergja íbúð í parhúsi sem var byggt 1981.
  • Breiðvangi 2, 90,7 m2, 3 herbergja íbúð í parhúsi sem var byggt 1981.

Sótt er um á Mínum síðum með umsókn um leiguhúsnæði í eigu Múlaþings, aðrar en félagslegar íbúðir.

Heimastjórn Borgarfjarðar annast úthlutun íbúðanna en um hana gilda reglur um úthlutun á leiguhúsnæði í eigu Múlaþings (aðrar en félagslegar íbúðir). Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar veitir Jón Þórðarson, jon.thordarson@mulathing.is. Umsóknarfrestur er til og með 27. mars næstkomandi.

Íbúðir á Borgarfirði auglýstar til leigu
Getum við bætt efni þessarar síðu?