Fara í efni

Yfirlit frétta

„Þjónustugátt“ Múlaþings heitir núna „Mínar síður“
15.04.21 Fréttir

„Þjónustugátt“ Múlaþings heitir núna „Mínar síður“

Nafnabreyting hefur verið gerð á þjónustugátt íbúa Múlaþings og heitir núna „Mínar síður“ Á heimasíðu Múlaþings er hægt að nálgast link sem núna heitir „Mínar síður“ (sjá mynd)
Munum reglur um útivistartíma
15.04.21 Fréttir

Munum reglur um útivistartíma

Þann 1. maí breytist þannig útivistartíminn og þá verður hægt að vera lengur úti í leikjum í góða veðrinu. Gildir útivistartíminn fyrir fæðingarárið, en ekki fæðingardag, og því gilda sömu reglur fyrir öll börn sem fædd eru á sama ári. Hægt er að lesa ýmsar ástæður fyrir því að takmarka útivist barna og unglinga á heimasíðu Umboðsmanns barna. Þar er að auki áréttað að reglur um útivistartíma segja til um það hvað börn og unglingar mega vera lengi úti á kvöldin, en ekki hvað þau eiga að vera lengi úti.
Seyðisfjarðarskóli.
15.04.21 Fréttir

Innritun í leik- og grunnskóla í Múlaþingi

Frétt inniheldur upplýsingar um innritun í leik- og grunnskóla Múlaþings fyrir skólaárið 2021-2022.
Rýmingarskilti í öll hús
14.04.21 Fréttir

Rýmingarskilti í öll hús

Gangskör var gerð að því af hálfu almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra að útbúa rýmingarskilti í kjölfar aurskriðna á Seyðisfirði í lok árs 2020. Skiltið er nú tilbúið og verður borið í öll hús á Seyðisfirði á næstu dögum. Á skiltinu má finna leiðbeiningar til íbúa um það hvað rétt myndi að taka með komi til rýmingar, að hverju skuli hyggja við rýmingu, hver tekur ákvörðun um rýmingu, afléttingu hennar og fleira. Gert er ráð fyrir að sambærilegum skiltum verði síðar dreift í hús á Eskifirði og í Neskaupstað.
Leikskólastarf í Múlaþingi
13.04.21 Fréttir

Leikskólastarf í Múlaþingi

Leikskólakerfið Vala Nú hafa leikskólarnir í Múlaþingi, allir nema leikskóladeild Seyðisfjarðarskóla, byrjað að nota nýtt leikskólakerfi sem heitir Vala. Leikskólakerfi Völu auðveldar og einfaldar alla umsýslu varðandi leikskólann fyrir foreldra, stjórnendur, starfsfólk og sveitarfélagið. Vala býður upp á vefumhverfi og öpp hvort sem er fyrir starfsfólk eða foreldra.
Herðubíó.
12.04.21 Fréttir

Verðlaunahátíð ungra áhorfenda - Herðubreið, Seyðisfirði

Verðlaunahátíð ungra áhorfenda fer fram 25. apríl í herðubreið, Seyðisfirði Evrópska kvikmynda akademían , Kvikmyndamiðstöð Íslands, MM/Sláturhús og Herðubreið Bíó bjóða öllum börnum á aldrinum 12 – 14 ára að taka þátt í kvikmyndahátíð sem meðlimir í dómnefnd. Kvikmyndahátíðin nefnist Verðlaunahátíð ungra áhorfenda (e. Young Audience Award) og er haldin samtímis víðsvegar um Evrópu eða hátt í 40 löndum þann 25. apríl.
Í beinni núna - 10. fundur Sveitarstjórnar Múlaþings 14. apríl
12.04.21 Fréttir

Í beinni núna - 10. fundur Sveitarstjórnar Múlaþings 14. apríl

10. fundur Sveitarstjórnar Múlaþings verður haldinn í fjarfundi miðvikudaginn 14. apríl 2021 og hefst klukkan 14:00. Lesa meira fyrir dagskrá fundarins.
Eyrarrósin auglýsir eftir umsóknum
09.04.21 Fréttir

Eyrarrósin auglýsir eftir umsóknum

Allt frá árinu 2005 hafa Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Icelandair (áður Flugfélag Íslands) staðið saman að Eyrarrósinni; viðurkenningu sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Fyrirkomulag viðurkenningarinnar hefur verið með svipuðu sniði allt frá upphafi, en við endurnýjun samstarfssamnings í ár var ákveðið að endurskoða skipulagið með það í huga að styrkja Eyrarrósina enn frekar sem raunverulegan bakhjarl lista- og menningarlífs utan höfuðborgarsvæðisins. Samráð var haft við menningarfulltrúa á landsbyggðinni í því ferli.
Borgarfjörður úhlutun leiguíbúða
07.04.21 Fréttir

Borgarfjörður úhlutun leiguíbúða

Sveitarfélagið Múlaþing auglýsir til leigu íbúðarhúsnæði á Borgarfirði. Um er að ræða íbúð í nýbyggðu parhúsi að Lækjarbrún.  Heimastjórn Borgarfjarðar mun útdeila íbúðinni í samræmi við reglur sveitarfélagsins. Umsækjendum íbúða er bent á að skattframtal síðasta árs þarf að fylgja umsókn. Athugið! Umsóknir berist í tölvupósti á jon.thordarson@mulathing.is eða bréfleiðis til Hreppstofu, 720 Borgarfirði eystra, ekki í gegnum þjónustugátt.
Ekkert nýtt smit hefur greinst á Austurlandi nýverið
07.04.21 Fréttir

Ekkert nýtt smit hefur greinst á Austurlandi nýverið

Ástandið í fjórðungi drekans telst því nokkuð gott þrátt fyrir allt. Öll teljast smitin til landamærasmita en ekki samfélags. Þau fundust í tíma og eru einangruð eins og hægt er. Hætta er því hverfandi á dreifingu þeirra.
Getum við bætt efni þessarar síðu?