Fara í efni

Rýmingarskilti í öll hús

14.04.2021 Fréttir Aurskriður á Seyðisfirði

Gangskör var gerð að því af hálfu almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra að útbúa rýmingarskilti í kjölfar aurskriðna á Seyðisfirði í lok árs 2020. Skiltið er nú tilbúið og verður borið í öll hús á Seyðisfirði á næstu dögum.

Á skiltinu má finna leiðbeiningar til íbúa um það hvað rétt myndi að taka með komi til rýmingar, að hverju skuli hyggja við rýmingu, hver tekur ákvörðun um rýmingu, afléttingu hennar og fleira.

Gert er ráð fyrir að sambærilegum skiltum verði síðar dreift í hús á Eskifirði og í Neskaupstað.

Rýmingarskilti í öll hús
Getum við bætt efni þessarar síðu?