Múlaþing býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir börn til að þroskast í leik og starfi. Góðir skólar eru í hverjum kjarna fyrir sig, margvíslegar tómstundir í boði og nálægð við náttúruna er mikill kostur.
Farsæld barna
Farsæld barna felur í sér að skapa barni skilyrði til að ná líkamlegum, sálrænum, vitsmunalegum, siðferðislegum og félagslegum þroska og heilsu á eigin forsendum til framtíðar. Útgangspunkturinn í öllu sem við gerum er barnið og hagsmunir þess.
Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, einnig þekkt sem farsældarlög, er ætlað að tryggja snemmtækan stuðning og tryggja samvinnu allra sem koma að velferð barna, fækka alvarlegum málum og bæta þjónustu við börn og fjölskyldur. Lögin ná til allrar þjónustu sem veitt er innan skóla- og heilbrigðiskerfisins, auk félagsþjónustu og lögreglu.
Aðilar sem koma að málefnum barna bera ábyrgð á að:
Fylgjast með velferð og farsæld barna og foreldra, og meta hvort þörf sé á þjónustu.
Bregðast við þegar þörf er á þjónustu, á skilvirkan hátt.
Hafa samráð sín á milli til að tryggja samfellu og samþættingu þjónustu í þágu velferðar og farsældar barna og foreldra.
Stigskipting þjónustunnar
Fyrsta stig: Grunnþjónusta sem er aðgengileg öllum börnum og foreldrum. Markmið að styðja við farsæld barns.
Annað stig: Úrræði þar sem veittur er einstaklingsbundinn og markvissari stuðningur. Markmið að tryggja farsæld barns.
Þriðja stig: Úrræði þar sem veittur er einstaklingsbundinn og sérhæfðari stuðningur. Markmið að tryggja að farsæld barns verði ekki hætta búin.
Tengiliður
Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að tengilið eftir því sem þörf krefur. Á meðgöngu og á ungbarnaskeiði er tengiliður barns starfsmaður heilsugæslu, í leik- grunn- eða framhaldsskóla er starfsmaður skólans. Ungmenni sem ekki fara í framhaldsskóla eða börn sem á einhvern hátt falla á milli ofangreindra þjónustukerfa hafa aðgang að tengilið hjá félagsþjónustu sveitarfélags. Tengiliður hefur viðeigandi þekkingu til að geta verið foreldrum og barni innan handar. Hann ráðleggur þeim og aðstoðar við að rata í gegnum kerfið og sækja þjónustu við hæfi.
Menntaskólinn á Egilsstöðum - upplýsingar um tengiliði er á vefsíðu skólans
Málstjóri
Ef barn þarf fjölþætta þjónustu á öðru og/eða þriðja stigi er tilnefndur málstjóri. Málstjórar eru að jafnaði starfsfólk félagsþjónustu sveitarfélaga. Hlutverk málstjóra er meðal annars að veita ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu, bera ábyrgð á gerð stuðningsáætlunar og stýra stuðningsteymi. Málstjóri hefur hagsmuni barnsins ávallt að leiðarljósi og rækir hlutverk sitt í samráði við foreldra og barn.
Innleiðing farsældar
Nánari upplýsingar um innleiðingu farsældar barna er að finna á vefnum
Foreldrar barna á aldrinum 0-18 ára, sem eru í skilnaðarferli eða hafa skilið fyrir einhverju síðan geta fengið námskeið, ráðgjöf og stuðning til að bæta samvinnu sín á milli.
Meginmarkmiðið er að koma í veg fyrir og/eða draga úr ágreiningi foreldra og styrkja foreldrasamvinnu með hagsmuni barnsins að leiðarljósi. Foreldrar öðlist færni í að takast á við óvæntar uppákomur tengdar skilnaðinum og auka skilning á viðbrögðum barna sinna við breytingunum.
Foreldrar geta nálgast námskeið með gagnreyndu námsefni á vefsíðu verkefnisins samvinnaeftirskilnad.is, sem er ætlað að hjálpa þeim við að takast á við breytingar og áskoranir sem algengar eru í kjölfar skilnaðar eða sambúðarslita.
Ef foreldrar telja sig þurfa frekari stuðning og eða fræðslu eftir að hafa farið í gegnum námskeiðin geta þau fengið:
Sérhæfða ráðgjöf hjá SES ráðgjöfum félagsþjónustu Múlaþings.
SES hópnámskeið fyrir foreldra, þar sem fjallað er um áhrif skilnaðar á fjölskyldur. Námskeiðin fara fram þegar lámarksþátttaka næst.
Samvinna eftir skilnað (Samarbejde efter skilsmisse – SES) var þróað í Danmörku og hafa rannsóknir sýnt marktækan mun á líðan þeirra sem taka þátt í verkefninu og þeirra sem ekki gera það. Rafræna þjónustan á samvinnaeftirskilnad.is og ráðgjöfin hjá Félagsþjónustu Múlaþings er foreldrum að kostnaðarlausu.
Hefur þú áhuga á að kynna þér málið? Hafðu samband með því að senda póst á mulathing@mulathing.is eða hafa samband í síma 4 700 700, SES ráðgjafar taka vel á móti þér.
Ráðgjöf vegna barna
Stuðningur og ráðgjöf við barnafjölskyldur felst m.a. í uppeldisráðgjöf, fræðslu og námskeiðum.
Í sérstökum tilfellum er börnum sem búa við erfiðar aðstæður s.s. félagslega einangrun veitt þjónusta í formi persónulegs ráðgjafa.
Foreldrar fatlaðra barna geta fengið aðstoð við að halda utan um málefni barna sinna varðandi samræmingu á þjónustu, ráðgjafi getur tekið þátt í teymisfundum foreldra og þjónustuaðila ef óskað er og veitt ráðgjöf til þeirra aðila sem veita börnunum þjónustu.
Einnig er foreldrum veitt aðstoð við umsókn um fjárhagslega aðstoð til Tryggingarstofnunar . Þörf fyrir fjárhagsaðstoð er metin með tilliti til umönnunarþarfa viðkomandi barns og fötlunar þess og er aðstoðin ætluð til þess að mæta ýmsum kostnaði vegna þjónustu við barnið.