Fara í efni

Norröna

Farþega- og bílferjan Norröna siglir í viku hverri milli Tórshavn í Færeyjum, Hirtshals í Danmörku og Seyðisfjarðar. Yfir háveturinn eða frá því seint í nóvember og fram í mars siglir hún þó ekki til Seyðisfjarðar.

Á sumrin eru komu- og brottfarardagar á Seyðisfirði á fimmtudögum en á vorin og haustin kemur ferjan á miðvikudögum og leggur frá bryggju á fimmtudagskvöld.

Norröna tekur 1482 farþega og 800 fólksbíla eða 130 stærri bíla. 

Heimasíða Norrönu

Síðast uppfært 02. október 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?