Fara í efni

Kosningar

Samhliða sveitarstjórnarkosningum 16. maí 2026 verður í Múlaþingi kosnir fulltrúar í heimastjórnir sveitarfélagsins. 

Heimastjórnir Múlaþings

Heimastjórnir eru fastanefndir innan sveitarfélagsins Múlaþings og starfa í umboði sveitarstjórnar. Í hverri heimastjórn eru þrír fulltrúar og með hverri heimastjórn starfar starfsmaður sem er fulltrúi sveitarstjóra á viðkomandi svæði. Umdæmi hverrar heimastjórnar miðast við sveitarfélagamörk gömlu sveitarfélaganna Borgarfjarðarhrepps, Djúpavogshrepps, Fljótsdalshéraðs og Seyðisfjarðarkaupstaðar. 

Framboð til heimastjórnar

Kjörgengir til heimastjórnar eru allir íbúar á kjörskrá í Múlaþingi, hver samkvæmt kjörskrá á sínu svæði. Einstaklingum sem vilja gefa kost á sér til heimastjórna býðst að kynna sig og sín áherslumál á síðunum, þar sem upplýsingarnar um þá einstaklinga sem þess óska og gefa kost á sér til setu í heimastjórn verða birtar í stafrófsröð.

Frambjóðendum er boðið að senda mynd af sér og stuttan kynningartexta að hámarki 200 orð. Í efninu þarf að koma fram nafn og heimilisfang frambjóðanda, sem eru þær upplýsingar sem kjósendur þurfa að skrá á kjörseðil í kosningunum sjálfum. Múlaþing ber ekki ábyrgð á því efni sem einstaklingar senda. Vanti nafn frambjóðanda eða heimilisfang verður efnið ekki birt.

Senda inn upplýsingar um framboð til heimastjórnar

Sveitarstjórnarkosningar

Framboð sem bjóða sig fram til sveitarstjórnakosninga 2026 eru:

  • B-listi Framsóknarflokksins
  • D-listi Sjálfstæðisflokksins
  • L-listi Austurlistans / Viðreisnar Múlaþingi
  • M-listi Miðflokksins
  • V-listi VG og óháðra
Síðast uppfært 20. apríl 2026
Getum við bætt efni þessarar síðu?