Sækja þarf um stöðuleyfi ef lausafjármuni eiga að standa lengur en tvo mánuði utan svæða sem eru skipulögð og ætluð fyrir geymslu þeirra. Kröfur í Aðalskipulagi Múlaþings geta tilgreint takmarkanir á útgáfu stöðuleyfa.
Dæmi um lausafjármunir sem geta þurft stöðuleyfi:
- Gámar
- Bátar
- Torgsöluhús
- Frístundahús í smíðum sem ætlað er til flutnings
- Stór samkomutjöld og hjólhýsi frá 1. október til 1. maí.
- Aðrir sambærilegir lausafjármunir.
Umsókn um stöðuleyfi
Eigandi lausafjármunar eða umráðamaður lóðar/fasteignar getur sótt um stöðuleyfi. Skriflegt samþykkti eiganda eða lóðarhafa þeirrar lóðar sem fyrirhugað er að lausafjármunirnir standi á, þarf að fylgja ef lóðin er ekki er í eigu umsækjanda.
Nánar um stöðuleyfi í byggingarreglugerð á vef HMS
Umsókn umstöðuleyfi