Fara í efni

17. júní í Múlaþingi

17. júní 2026

Egilsstaðir

10:00 Blöðrusala meistaraflokks Hattar í knattspyrnu kvenna í Hettunni við Vilhjálmsvöll

10:30 Fjölskyldustund í Egilsstaðakirkju

11:00 Skrúðganga frá Egilsstaðakirkju. Lúðrasveit Fljótsdalshéraðs leiðir skrúðgönguna ásamt fánaberum og endar gönguna við fimleikahúsið með tónlistaratriði. Fimleikasýning í fimleikahúsinu að skrúðgöngu lokinni.

Dagskrá í Tjarnargarðinum:

11:30 – 12:30 Móttaka skúlptúra í skúlptúrasamkeppni barna (árg. 2014-2020). Þemað í ár er fimleikar.

11:30 – 14:15 Skemmtilegt í garðinum, hoppukastalar, andlitsmálun, krakkazumba, sjoppa – candy floss, popp, pylsur og fleira góðgæti

13:00 Hátíðardagskrá á sviðinu í Tjarnargarðinum: Hátíðarræða, tónlistaratriði, fjallkonan, árleg viðurkenning Rótarý, atriði úr Minningaleikhúsinu, fimleikadeild Hattar 40 ára, verðlaunaafhending fyrir skúlptúrasamkeppni.

Afmæliskaka í boði fimleikadeildar Hattar að dagskrá lokinni.

Sýningar:

  • Sláturhúsið: Sumarsýning Sláturhússins, Melancholia eftir Wiolu Ujazdowska, opnuð klukkan 15:00.
  • Safnahúsið: Sýningin Ljóð á flugi opnuð. Opið hús á milli 11:00 og 17:00.

Seyðisfjörður

11:00 Blómsveigur lagður á leiði Björns í Firði. Að því loknu geta skrúðgönguþyrstir Seyðfirðingar tekið göngu (sjálfstæðir og án fylgdar eins og þeim er einum lagið) inn í regnbogagötu.

12:00 17. júní hlaup Hugins fyrir 12 ára og yngri. Hópaskipt eftir aldri, engin þörf á skráningu, bara mæta! Verðlaun í öllum flokkum.

13:00 Hátíðardagskrá við Seyðisfjarðarkirkju: Hátíðarmessa, sr. Sveinbjörn Dagnýjarson messar, kirkjukór Seyðisfjarðar og Hlín Pétursdóttir Behrens organisti leiða söng. Ávarp fjallkonu, tónlistaratriði, hátíðarávarp, hvatningarverðlaun Hugins.

Babú-bílarnir mæta á svæðið og bjóða upp á líflegan rúnt um bæinn. Ýmis önnur afþreying fyrir börnin, helíumblöðrur og fleira í Hugins-sjoppunni. 

Þjóðhátíðarstemning og góð tilboð á Öldunni og Kaffi Láru - El Grillo.

Sýningar:

  • Skaftfell gallerí verður opið á milli 14:00 og 17:00 og býður upp á sérstakt hátíðaverð á nýútkomnum bókum.
  • Tækniminjasafnið verður opið á milli 13:00 og 17:00.

Djúpivogur

13:00 Andlitsmálun í Gömlu kirkjunni

14:00 Skrúðganga frá Gömlu kirkjunni

14:30 Hátíðardagskrá í Blá. Fánahylling og ávarp fjallkonu, skemmtiatriði, kaffi á könnunni, grillveisla í boði Neista, hoppukastalar og fjör

15:30 Vatnsrennibraut í Neistabrekkunni ef veður leyfir. 

Borgarfjörður

12:00 Andlitsmálun á Heiðinni

13:00 Skrúðganga frá Heiðinni

14:00 Leikir og sprell á fótboltavellinum

15:30 Pylsu- og vöfflupartý við Fjarðarborg.

Getum við bætt efni þessarar síðu?