Fara í efni

Brúum bilið: Alþjóðlegi safnadagurinn

Minjasafn Austurlands, Laufskógum 1, Egilsstöðum 18. maí 2026 kl. 17:00-18:00
Í tilefni af alþjóðlega safnadeginum 18. maí býður Minjasafn Austurlands til gönguferðar um Egilsstaði þar sem nýbúum og öðrum áhugasömum gefst tækifæri á að ganga um þorpið með eldri borgurum af Héraði undir leiðsögn Michelle Mielnik. Þema alþjóðlega safnadagsins í ár er „Söfn sem sameiningarafl í sundruðum heimi“. Gengið verður af stað frá Safnahúsinu að Laufskógum 1 kl. 17.00 og endað á Tehúsinu. Þau sem vilja geta fengið far aftur að Safnahúsinu að göngunni lokinni.
------------------------------------------------------------------------
On the occasion of International Museum Day on May 18th, The East Iceland Heritage Museum invites new residents and others interested to explore the town together with senior residents from the area under the guidance of Michelle Mielnik. The theme of this year is “Museums uniting a divided world.”
The tour will start from the museum at Laufskógar 1 at 5:00 PM and finish at Tehúsið. Transportation back to the museum will be available after the walk.
 
Getum við bætt efni þessarar síðu?