Fara í efni

Dalía - Tónleikaröðin Bláa kirkjan

Bláa kirkjan, Seyðisfirði 8. júlí 2026 kl. 20:30

Hljómsveitin Dalía með Seyðfirðinginn Björt Sigfinnsdóttur í broddi fylkingar ríður á vaðið í dagskrá sumarsins.

DALÍA er nýstofnuð hljómsveit þar sem einvala lið tónlistarfólks úr íslensku tónlistarlífi leiðir saman krafta sína þvert yfir landið í lítilli röð tónleika sumarið 2026. Hljómsveitina skipa söngkonan Björt Sigfinnsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Sigmar Þór Matthíasson á kontrabassa og trommuleikarinn Birgir Baldursson.

Á tónleikunum verða spilaðar eigin útsetningar af uppáhalds jazz- og blúslögum bandsins í bland við frumsamið efni, íslenska sálma/þjóðlög og einstaka “off genre” perlur úr ýmsum áttum.

Almennur aðgangseyrir: 4.000 kr. Öryrkjar og eldri borgarar: 3000 kr. 16 ára og yngri: Ókeypis

//

DALíA is a collaboration of acclaimed musicians from the Icelandic music scene, joining forces from across the country for a short concert series in the summer of 2026. The band features singer Björt Sigfinnsdóttir, Ásgeir Ásgeirsson on guitar, Sigmar Þór Matthíasson on double bass, and drummer Birgir Baldursson.

The concerts will feature the band’s own arrangements of their favorite jazz and blues songs, mixed with original material, Icelandic hymns and folk songs, as well as occasional “off-genre” gems from various musical directions.

Getum við bætt efni þessarar síðu?