Fara í efni

Dyrfjallahlaupið 2026

Borgarfjörður eystra 4. júlí 2026

Dyrfjallahlaupið býður hlaupurum af öllum getustigum að upplifa einstaka náttúru Víknaslóða á nýjan hátt. Þessi ógleymanlegi viðburður fer fram í einstöku umhverfi hinna svipsterku Dyrfjalla.

Hlaupið er fyrir alla – hvort sem þú ert vanur fjallahlaupari, náttúruunnandi eða ævintýragjarn byrjandi. Þátttakendur geta valið milli mismunandi vegalengda, allt frá krefjandi 50 km ULTRA fjallahlaups yfir í styttri, fjölskylduvænni leiðir.

Skráningarfrestur fyrir 50 km rennur út 2. júlí 2026 kl. 18:00 en í 24 km og 12 km er hægt að skrá sig 30 mín fyrir hlaup ef ekki er orðið uppselt.

Sænska hlaupadrottningin Tove Alexandersson hefur staðfest komu sína í Dyrfjallahlaupið að þessu sinni. Alexandersson er sem stendur stigahæsta kona heims á heimlista ITRA (International Trail Running Association - https://itra.run/Runners/Ranking) og varð heimsmeistari í utanvegahlaupum á heimsmeistaramótinu í Canfranc í september síðastliðnum.

Það eru Dyrfjallahlaupið (www.dyrfjallahlaup.is) og Frjálsíþróttasamband Íslands (www.fri.is) sem standa að komu Tove til Íslands. Þetta verður án efa einn stærsti viðburður í sögu utanvegahlaupa á Íslandi.

Tove Alexandersson þarf vart að kynna fyrir áhugafólki um utanvegahlaup. Hún er ríkjandi heimsmeistari í utanvegahlaupum og hefur unnið tæplega 30 heimsmeistaratitla í rathlaupi og skíðarathlaupi. Að hún sitji í efsta sæti ITRA listans staðfestir að hún er fremsti hlaupari heims um þessar mundir. Þetta er í fyrsta sinn sem hún kemur til Íslands til að keppa.

Gæti rofið tveggja tíma múrinn

Búist er við því að Tove geri alvarlega atlögu að brautarmeti kvenna, sem Andrea Kolbeinsdóttir á nú (2:22:40). Markmiðið er þó stærra, en engin kona hefur enn farið brautina undir tveimur klukkustundum. Til samanburðar á Þorbergur Ingi Jónsson brautarmet karla, 1:55:58, og verður fróðlegt að sjá hversu nálægt því meti besta kona heims kemst, spurning hvort að hún nái að slá það.

Dyrfjallahlaupið er þekkt fyrir stórbrotna náttúru og krefjandi hlaupaleiðir þar sem farið er um eitt fegursta hlaupa- og göngusvæði landsins, Víknaslóðir, í nágrenni við Borgarfjörð eystri.

Hægt að er sjá stutta heimildarmynd um hlaupið hérna: https://www.youtube.com/watch?v=Y8amhGIsYIE

Dyrfjallahlaupið 2026

Tove Alexandersson

Getum við bætt efni þessarar síðu?