Vegna mikillar eftirspurnar verður boðið upp á aukasýningu á sviðslistaverkinu Ég man í Sláturhúsinu á Egilsstöðum.
Hver manneskja býr yfir miklum fjársjóði, aragrúa minninga og sagna úr eigin lífi. Sviðsetning minninga eldri borgara gefur þeim vægi og veitir áhorfendum innsýn inn í líf þeirra sem þær eiga.
ÉG MAN er sviðslistaverk þar sem áhorfendum er í boðið í minningaferðalag með 13 eldri borgurum sem búsettir eru á Egilsstöðum. Um er að ræða lifandi leikhús sem spannar allan tilfiningaskalann og er uppfullt af leikgleði, söng, dans og tónlist.
Leikarar:
Ásta Hjaltadóttir, Baldur Pálsson, Edda Björnsdóttir, Fjóla Egedía Sverrisdóttir, Guðlaug Bachmann, Guðrún Sóley Guðmundsdóttir, Gunnþórunn Benediktsdóttir, Hjördís Hilmarsdóttir, Jóhanna Illugadóttir, Ragnar Elísson, Sigríður Friðný Halldórsdóttir, Sigrún M. Vilhjálmsdóttir og Símon Friðrik Símonarson
Leikstjórn: Andrea Katrín Guðmundsdóttir
Píanó: Héctor Nicolás
Harmonikka: Gunnþórunn Benediktsdóttir
Miðaverð: 2.900 kr.
Sýningin er styrkt af Uppbyggingarsjóði Austurlands
Ekki missa af þessari nýjung í flóru íslenskrar leiklistar.