Fara í efni

Fundur með frambjóðendum um málefni fatlaðs fólks

Þingmúli, Valaskjálf 12. maí 2026 kl. 17:00-18:00

Þroskahjálp á Austurlandi í samstarfi við Landssamtökin Þroskahjálp standa fyrir opnum framboðsfundi með fulltrúum þeirra flokka sem bjóða fram í Múlaþingi í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí. Fundurinn fer fram í Þingmúla í Valaskjálf á Egilsstöðum þriðjudaginn 12. maí og hefst klukkan 17.

Guðmundur Ármann Pétursson formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar kynnir samtökin.

Fulltrúar þeirra flokka sem bjóða fram í Múlaþingi kynna stefnu sína í málefnum fatlaðs fólks.
Spurningar úr sal og spjall.

Boðið verður upp á kaffiveitingar.

Öll velkomin!

Getum við bætt efni þessarar síðu?