Við bjóðum öllum klifurum á sannkallaða klifurhátíð á Seyðisfirði í júlí 2026 þar sem við fögnum sumrinu og sólinni, klifurum af okkur allt skinn og skemmtum okkur konunglega!
Eftir frábæra hátíð árið 2024 er komið að næstu veislu. Þessi hátíð verður svipuð - við stefnum aftur á 25 stiga hita og bongóblíðu, mikið klifur og framúrskarandi félagsskap.
Saunan og varðeldur verður á sínum stað, sem og Seyðfirskt bakkelsi og slackline stund. Við verðum með lokapartý á Öldunni á laugardagskvöldinu þar sem DJ Ívar Pétur úr FM Belfast heldur uppi stuðinu.
Í þetta skiptið ætlum við að hafa lengdarmetrakeppni í klifrinu og við bindum vonir við að Kilter-veggurinn okkar verði tilbúinn svo allir ættu að geta spreytt sig á honum líka.
Í ár mun þá hátíðin vera aðeins lengri, á fimmtudeginum stefnum við á að bjóða upp á fjallgöngu á einn af tignarlegum tindum fjarðarins, ef nægur áhugi er fyrir hendi. Á föstudeginum verður hlaupahópur um morguninn fyrir klifur. Til viðbótar verður frábær viðburður fyrir yngstu þátttakendurnar, en Ívar Pétur ætlar að vera með Baby-rave og við verðum með ýmsa leiki og skemmtun fyrir þau samhliða því. Á laugardeginum verður yoga-upphitun með óvæntu tvisti fyrir klifrið.
Seyðisfjörður hefur óþrjótandi möguleika til útivistar af ýmsum toga og því ættu allir gestir að finna eitthvað við sitt hæfi.
Tjaldsvæðið er staðsett í hjarta bæjarins með sturtum, salerni og þjónustuhúsi með eldunaraðstöðu. Stutt er í fjölda veitingastaða, bakarí og sundlaug.
Við fáum sérstakan afslátt á gistingunni og mun skráning fara fram hjá okkur Jafet fyrirfram sem og greiðsla.
Í ár mun þátttaka kosta 3000 kr á hvern fullorðinn einstakling. Með því getum við gert hátíðina enn veglegri. Öll vinna fer fram í sjálfboðavinnu af okkar hálfu og allt fjármagn fer beint í að gera upplifunina sem besta.
Áhugasöm eru hvött til að koma fyrr og setja upp leiðir í firðinum, nú eða vera lengur. Frekari upplýsingar um leiðauppsetningu veitir Jafet Bjarkar.
*Varahelgi verður næsta helgi þar á eftir, 16-19 júlí 2026.
** Varavara helgi er þar á eftir 23-26 júlí 2026
Facebook viðburður