⚡️50 ára afmæli Lagarfossvirkjunar á Ormsteiti⚡️
Orkusalan býður til skemmtilegrar samverustundar við Lagarfossvirkjun á sunnudeginum á Ormsteiti. Afmælið fer fram í fallegu umhverfi við stöðvarhúsið og virkjunina.
✨ Dagskrá dagsins - stuð, saga og samvera:
💜 Veitingar á svæðinu frá kl. 11:00, grillaðar pylsur, drykkir, afmæliskaka og kaffi
💜 Kubbur og Pétanque fyrir börnin 🏰
💜 Sýning á stöðvarhúsi, spjall við stöðvarstjóra og fræðsla um sögu virkjunarinnar og starfsemi hennar í dag 💧
Á Austurlandi á sjöunda áratugnum var raforka að mestu framleidd með dísilvélum. Rekstur þeirra var bæði dýr og mengandi, og eftirspurn eftir öruggari og hagkvæmari orku orðin mikil. Með byggingu Lagarfossvirkjunar, sem var formlega opnuð 1975, var stigið mikilvægt skref í átt að sjálfbærri raforkuframleiðslu fyrir heimilin og atvinnulífið á svæðinu. Í dag, hálfri öld síðar, minnir sagan á þá umbreytingu sem varð þegar hrein orka tók við af dísilframleiðslu og undirstrikar þann árangur sem Íslendingar hafa náð í orkuskiptum ⚡️
Mætum sem flest í tilefni þessa merka áfanga í sögu raforkumála á Austurlandi.
Öll velkomin – við hlökkum til að sjá ykkur!