Fara í efni

Langt út / Far out: Ívar Klausen & co

Sláturhúsið, Kaupvangi 9 3. júlí 2026 kl. 20:00-21:00
Ívar Klausen mætir kátur eins og slátur í Sláturhúsið á Egilsstöðum ásamt rjóma íslenskra tónlistarmanna.
 
Ívar Klausen er mjög virkur sem tónlistarflytjandi, session spilari og tónskáld en hann kemur fram á fjölmörgum og fjölbreyttum verkefnum og tónleikum á ári hverju
 
Efnisskráin verður af léttari kantinum í anda sálarskotinnar popprokk tónlistar af fyrstu sóló plötu Ívars sem kom út í apríl, ásamt splúnku nýjum óútgefnum lögum bæði í dúr og moll sem verða leikin á stór og lítil hljóðfæri.
 
Með Ívari verður besta hljómsveitin í sveitinni:
Alexander Grybos — gítar og bakraddir
Pálmi Stefánsson — trommur og bakraddir
Elvar Bragi — orgel, rafpíanó og brandaramaður
Hjálmar Carl Guðnason — bassi og bakraddir
Róbert Aron — saxófónn og slagverk
 
Fjölraddanir, spilagleði og húmor hafa verið einkennandi á tónleikum Ívars.
 
Komið fagnandi!
Miðaverð kr 3000
Getum við bætt efni þessarar síðu?