Fara í efni

Leik og Sprell á Djúpavogi

Íþróttamiðstöð Djúpavogs 29. júlí 2026

Í sumar mun Leik og Sprell standa fyrir vikulöngum söng- og leiklistarnámskeiðum á Djúpavogi og Egilsstöðum. Námskeiðin eru fyrir börn á aldrinum 6-13 ára.

Á námskeiðum Leik og Sprell fá börn tækifæri til að skapa og leika í öruggu umhverfi. Þau læra túlkun í gegnum söng og leik, farið er yfir grunn í söngtækni og búin til glæný sýning sem vinir og fjölskyldumeðlimir fá að sjá í lok námskeiðsins. Allir fá að setja sinn svip á sýninguna með lagavali og hugmyndavinnu.

Dag- og staðsetningar:

Egilsstaðir: Sláturhúsið, 22. júní til 26. júní kl. 9:00-12:00
Djúpivogur: Íþróttahúsið, 29. júní til 3. júlí, kl. 9:00-12:00

Kennarar eru Almar Blær Sigurjónsson og Bjartey Elín Hauksdóttir

Allar nánari upplýsingar má finna á vef og samfélagsmiðlum Leik og Sprell

Skráning fer fram á Abler

 

 

Getum við bætt efni þessarar síðu?