Fara í efni

Leikhópurinn Lotta á Djúpavogi

Neistabrekka, Djúpavogi 20. júlí 2026 kl. 17:00-18:00
Leikhópurinn Lotta sýnir leikritið Litaland í Neistabrekkunni á Djúpavogi
 
Lotta fagnar tuttugu ára afmæli í ár og setur af því tilefni upp söngleikinn Litaland um allt land í sumar! Eins og alltaf býður hópurinn upp á skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem saman koma söngur, gleði, dans og húmor fyrir unga sem aldna. Sýningaplan sumarsins má finna á www.leikhopurinnlotta.is.

Sýningin er um klukkustund að lengd og fer fram utandyra. Við hvetjum gesti til að klæða sig eftir veðri, taka með sér nesti, teppi og góðan ævintýraanda. Einnig er gott að hafa símann vel hlaðinn, því að sýningu lokinni gefst áhorfendum kostur á að taka mynd með sinni uppáhalds ævintýrapersónu.

Miðaverð er 4.900 kr. (frítt fyrir tveggja ára og yngri) og hægt er að kaupa miða á staðnum og á tix.is.
Viðskiptavinir í Stofni hjá Sjóvá fá 2 miða á verði 1.
 
Múlaþing styrkir sýningar Leikhópsins Lottu í sveitarfélaginu.
Getum við bætt efni þessarar síðu?