Ljósmyndadagar á Seyðisfirði fara fram í fjórða sinn dagana 1. til 17 maí. Þema hátíðarinnar í ár er staðarviska og verður sjónum beint að tengslum staðar, iðkunar og fólks.
Á hátíðinni verður boðið upp á vinnustofur undir handleiðslu alþjóðlegra sérfræðinga ásamt fjölbreyttri dagskrá ókeypis viðburða fyrir almenning. Meðal viðburða sem eru á dagskrá hátíðarinnar í ár er ljósmyndasýning með ljósmyndum seyðfirskra listamannsins Ásgeirs Jóns Emilssonar eða Geira, Karen Stentaford býður samfélaginu í portrettmyndatöku með blautplötuaðferð, kvikmyndasýningar, samtöl við listamenn, samfélagskvöldverður og margt fleira.
Nánari upplýsingar um dagskrá og einstaka viðburði má finna hér.