Fara í efni

Netöryggi, stafræn velferð og farsæld: Fræðsla fyrir foreldar og öll þau sem koma að degi barna

Egilsstaðaskóli 10. mars 2026 kl. 17:00
Við lifum á tímum þar sem netið er stór hluti af lífi barna og ungmenna – með ótal tækifærum en líka áskorunum. Þessi fræðsla er sérstaklega sniðin að foreldrum sem vilja styðja börnin sín í að vaxa og dafna í stafrænum heimi.
 
Á fundinum fá foreldrar fræðslu, hagnýt verkfæri og tækifæri til að styrkja samtal og samvinnu innan fjölskyldunnar.
 
Sigurjón Már Fox Gunnarsson – Stafrænt uppeldi
Hvernig getum við sem foreldrar verið leiðandi, styðjandi og skýr í stafrænu uppeldi? Fjallað verður um ábyrgð, mörk, hættur á netinu og hvernig við byggjum upp traust í kringum netnotkun barna.
 
Anna Laufey Stefánsdóttir – Stafræn velferð
Hvað þýðir stafræn velferð í daglegu lífi barna og fjölskyldna? Rætt verður um jafnvægi, skjátíma, andlega líðan og hvernig við styðjum við heilbrigt samband við tæknina.
 
Dagbjört Harðardóttir – Samvinna barnanna vegna
Hvernig getum við foreldrar unnið saman að farsæld barna okkar? Fjallað verður um mikilvægi samstöðu, skýrra skilaboða og sameiginlegrar ábyrgðar í skóla- og foreldrasamfélaginu.
Við tengjum saman netöryggi, stafræna velferð og Farsældarsáttmálann með það að markmiði að styrkja foreldra í hlutverki sínu – með þekkingu, öryggi og uppbyggilegu samtali að leiðarljósi.
 
Fræðslan fer fram í Egilsstaðaskóla klukkan 17:00 þann 10 mars og aðgangur er ókeypis.
 
Við hlökkum til að eiga með ykkur hlýja og uppbyggjandi stund þar sem við styðjum hvert annað í mikilvægu hlutverki foreldra í stafrænum heimi.
 
Getum við bætt efni þessarar síðu?