Fara í efni

Opin vinnustofa í Skaftfelli

Skaftfell, Austurvegi 42 Seyðisfirði 30. maí 2026 kl. 14:00-16:00
Gestalistamenn Skaftfells bjóða ykkur hjartanlega velkomin í opna vinnustofu í Skaftfelli með tilheyrandi dagskrá laugardaginn 30.maí.

14:00 - 16:00 - Opin vinnustofa í íbúð Skaftfells, Austurvegi 42.
Tómas, Kata, Katla, Ástríður og Zekarias deila bæði fullunnum verkum og verkum í vinnslu með gestum, en þau hafa dvalið í gestavinnustofu Skaftfells undanfarnar sex vikur.
Þau hafa til dæmis unnið að tréskurði, handprenti og olíumálun en auk þess kynnt sér aðferðir samvinnu með því að spjalla, rölta og leggja við hlustir. Á opinni vinnustofu sýna gestalistamennirnir meðal annars bókverk, skúlptúra, málverk og teikningar.

16:00 – On Collaboration Part 1: BFFs Forever - Gjörningur hefst í Skaftfelli og ferðast gegnum bæinn. Verið tilbúin að labba, tína og leika við okkur.

20:00 – BFR (Best Friends Reception) - vinaveisla í Herðubíó

Meira um listamennina á vef Skaftfells
Getum við bætt efni þessarar síðu?