Samráðsfundur með íbúum Austurlands á Egilsstöðum þriðjudaginn 26. ágúst um samgöngur, fjarskipti, sveitarstjórnar- og byggðamál.
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra boðar til opinna íbúafunda í ágúst í öllum landshlutum til að eiga samráð um málaflokka ráðuneytisins. Tilgangur fundanna er að kalla eftir sjónarmiðum íbúa og sveitarstjórnarfólks um málaflokka ráðuneytisins – samgöngur, sveitarstjórnar- og byggðamál og fjarskipti og stafræna innviði.
Fundirnir eru opnir öllum en skráning er á vef Stjórnarráðsins. Fundir verða haldnir síðdegis og boðið upp á kaffiveitingar á hverjum stað.
Skráningarsíða fyrir fundinn á Egilsstöðum
