Fara í efni

Peaces Ensemble í Bláu kirkjunni

Seyðisfjarðarkirkja 29. maí 2026 kl. 20:00-21:30
Gestalistamenn Skaftfells bjóða á tónleikana Hvernig mættum við kynnast? með Peaces Ensemble í Bláu kirkjunni föstudagskvöldið 29. maí kl. 20:00. Ókeypis og opið öllum.

Hvernig mættum við kynnast? er spunnið tónverk fyrir saxófón, kirkjuorgel og hljóðgervil, meðal annars, sem tekur mið af spurningunni sem titill hennar varpar fram. Flytjendurnir hefja verkið á því að hlusta eftir hvernig þau hafa kynnst hvert öðru, hvernig þau mættu kynnast fólkinu í salnum og á hvaða hátt við kynnumst öll landslaginu sem umvefur okkur.
 
Tónverkið markar upphaf helgarinnar On Collaboration Part 1: BFFs Forever, eftir gestalistamenn Skaftfells Ástríði Jónsdóttur og Zekarias Musele Thompson.
 
Peaces Ensemble skipa Zekarias Musele Thompson, Joshua Wismans, Pétur Eggertsson, Tómas van Oosterhout og petals. Mörg þeirra munu hittast í fyrsta sinn.
Peaces er þverfaglegt samstarfsverkefni Zekarias Musele Thompson og Joshua Wismans, með aðsetur í Oakland, Kaliforníu. Þau notast við unnin hljóð, ómun, rafeindatækni, myndbönd og innsetningar og skapa með þeim rými til sameiningar.
Getum við bætt efni þessarar síðu?